Merki Skátasultunnar
Merki Skátasultunnar

Efnisleyfi

Athugið: Yfirsagnir í þessum skilmálum eru eingöngu til leiðbeiningar og teljast ekki hluti af skilmálunum sjálfum.

1. Almennt

Með þessu efnisleyfi veitir Ritstjórn Skátasultunnar (hér eftir "rekstraraðili") öllum einstaklingum og lögaðilum leyfi til að afrita, dreifa og nýta efni sem birtist á vefsíðunni skatasulta.is (hér eftir "vefsíðan"), með þeim skilmálum sem fram koma hér að neðan.

2. Skilyrði notkunar

Notendur hafa heimild til að afrita og nýta sér efnið á vefsíðunni að því gefnu að þeir samþykki eftirfarandi skilyrði:

  • Ef rekstraraðili eða höfundarréttarhafi óskar eftir því að notandi fjarlægi eða hætti að nota efnið, skal notandi verða við þeirri beiðni án tafar.
  • Efnið skal ekki afbakað, breytt eða notað á villandi hátt sem getur skapað misskilning um uppruna þess.

3. Ábyrgðarleysi

  • Rekstraraðili ber enga ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni, tapi, eða öðrum skaða sem kann að verða vegna afritunar, dreifingar eða notkunar á efni frá vefsíðunni.
  • Notendur nýta efnið á eigin ábyrgð og eru skuldbundnir til að tryggja að notkunin samræmist gildandi lögum og reglum.

4. Höfundarréttarhafi, rekstrar-, og vistunaraðili

Höfundarréttarhafi og rekstraraðili vefsíðunnar er:

Nafn: Ristjórn Skátasultunnar
Heimilisfang: Sólheimum 21a, 104 Reykjavík
Tölvupóstur: ritstjorn@skatasulta.is
Símanúmer: 539-5450

Vistunaraðili vefsíðunnar er:

Nafn: Spaugur ehf.
Heimilisfang: Neshaga 16, 107 Reykjavík
Tölvupóstur: serlausnir@spaugur.is
Símanúmer: 537-5588

Ef einhverjar spurningar vakna varðandi þetta efnisleyfi, vinsamlegast hafið samband við rekstraraðila á ofangreindum samskiptaupplýsingum.

Þetta efnisleyfi tók gildi þann 4. apríl 2025 og kann að verða uppfært án fyrirvara.