Fréttavakt
Grínþráður Skátaþings 2026
Þetta er grínþráðurinn!

Skátaþing 2025.
11. apríl 2026 kl. 3:50
Stjörnuspá skátasultunnar 2026:
Hrútur
Kæri hrútur þú ert jarðýta með hvatvísnis vandamál. Major hvolpa orka, veist ekki alveg hversu mikil áhrif þú hefur.
Tvíburi
Kæri tvíburi, þú ert annaðhvort ein af tveimur gerðum tvíbura: Mega chill félagslindur tvíburi eða sjálfsskipað fórnarlamb alheimsins tvíburi.
En þið hittist öll á mörkunum “ég elska að ragebait-a”
Meyja
Elsku Meyja, Það þarf ekki alltaf allt að vera fullkomið. Þú getur ekki stjórnað öðru fólki. Chill out
Vatnsberi
Hæ Vatnsberi! Ég kallaði þig furðufugl í fyrra það er ekkert við það bætandi. En við þurfum þessa furðufugla orku til að halda samfélaginu gangandi með nýsköpun og þróun.
Krabbi
Hæ Krabbi! Þú ert rúsínan í grjónagrautnum og kleinuhringurinn sem ég fékk mér í morgun dísætt.
Ljón
Shine bright like a diamond.
Sporðdreki
Elsku besti sporðdrekinn minn, hleyptu fólki nær þér það bítur mjög sjaldan.
Fiskur
Elsku fiskur, ég veit að seinast talaði ég um hvað fiskar eru delulu og ég stend enþá með þeirra staðhæfingu, en ég held að í þetta skipti sé það í lagi. Þú ert búinn að standa þig vel. Fáðu þér nammi.
Steingeit
Þú ert geitin!
Bogamaður
Þú ættir að standa upp og dansa makarena. þú mikli áhrifavaldur og stuðbolti.
Vog
Ég er svo viss um að þú munir vinna best dressed verðlaunin sem ég mun veita á eftir á hátíðarkvöldverðinum. DIVA.
Naut
Ég er frekar nautsleg í dag, mig langar rosalega að fara heim og horfa á góðan þátt með gott snarl við hendi. Jafnvel undir góðu teppi.
11. apríl 2026 kl. 3:28
BIRTA VIÐTAl
Skátasultan fékk að ræða við hina einu sönnu Birtu Dís (celeb)(Svanur).
SS: Hvernig er að vera fræg?
BD: Draumur lífs míns, Icelandair gerir ekkert annað en að spila lagið mitt, Icelandair er mögulega að ræna pening af mér þar sem ég hef ekki en fengið neina þóknun en allar ár renna eflaust til sjávar. (þ.e.a.s peningurinn frá Icelandair)
SS: Hvernig er að vera á skátaþingi?
BD: mjög skemmtilegt, mjög spennandi, mjög spennt fyrir hátíðarkvöldverðinum, það verður sushi í forrétt.
SS: Ætlar þú að spila?
BD: Hver veit nema gítarinn láti sjá sig.
SS: Er það satt að annar Svanur fór í nám með það að markmiði að mögulega taka upp næstu plötu fyrir þig?
BD: já
SS: Hvað er í vændum?
BD: fyrsta platan. Lögin eru samin, eigum bara eftir að taka þau upp, síðan er gigg í maí þar sem ég mun flytja new fresh stuff ásamt gamla góða dótinu.
SS: Er eitthvað sem þú villt segja að lokun?
BD: Fyrir hverja hlustun fær viðkomandi koss og hafið augun opin fyrir komandi efni.
segir Birta Dís með miklu gústói og þakkar fyrir sig
Birta Dís er einnig stór aðdáandi skátasultunnar og sagðist hafa eytt þinginu í það að ýta á refresh takkann á þessari síðu.
11. apríl 2026 kl. 2:36
Nýr leikur!
Nýr leikur just dropped: https://slodi.is/leikir/horpuhopp - RUN DON'T WALK
11. apríl 2026 kl. 11:44
Réttindi tæknimanna
Þessi penni vill fá að vita hvernig réttindi tæknimanna skátaþings eru háttuð. Tæknimaðurinn kallaður Dabbinn (sjá mynd) er geymdur inn í lokuðu rými með skilti sem segir að ekki megi fóðra Dabbann né banka á glerið. Þetta vekur upp spurninguna: Eru tæknimenn skátaþings með minni réttindi en við hin? Ef maður tekur að sér hlutverk tæknimanns er maður meintur um réttinn að neyta matar? og hvað gerist þegar maður bankar á glerið? more on this later.
11. apríl 2026 kl. 11:39
Thelma supremacy
Ef að Thelma myndi stinga upp á því að halda skátaþing á tunglinu myndi mér finnast það góð hugmynd.
11. apríl 2026 kl. 11:38
Afsakið hlé
Netið er búið að vera að stríða mér - mikið efni á leiðinni engar áhyggjur!
11. apríl 2026 kl. 10:30
Kökureview!
Kakan 7/10
Snúðurinn 3/10
Hinn snúðurinn 7/10
11. apríl 2026 kl. 9:47
Orð dagsins
Þessi ritstjóri hefur verið að hugsa mikið um góð íslensk orð og hef ég heyrt þó nokkur á þessu þingi:
Orð dagsins er:
- Kvöð
11. apríl 2026 kl. 9:21
Grafískur hönnuður óskast - SLÓÐI
Signý Krístín sem fjallað var um hér fyrir neðan (hlaut styrk fyrir að vera legend) bað mig um að auglýsa lausa stöðu hjá sér. Ekki hélt ég að þessi þráður myndi einn daginn vera atvinnuleit en ég tek þessu nýja hlutverki fagnandi. Slóði er að leita sér að grafískum hönnuði til að gegna því mikilvæga hlutverki að halda nýju vefsíðunni stílhreinni.
Eins og sjá má á innsendu myndinni, er um verulegan skort að ræða.
11. apríl 2026 kl. 8:55
Góðan daginn Sultu nation! - Morgunpistill ritstjóra
Að vakna klukkan 8 á laugadags morgni er óvenjuleg hegðun fyrir flest ungmenni. Laugardagar eru tíminn þar sem maður fær loksins að jafna sig eftir langa og erfiða viku og safna upp styrk fyrir þá næstu. Því spyr þessi penni, er stemming fyrir því að seinka deginum? Byrja daginn klukkan 10?? Skoðanir berast í þetta símanúmer: 539 5450
Margir af þeim sem sitja á þessu þingi byrjuðu daginn á ferð í bakaríið. Þessi penni fór sjálf og fékk sér skinkuhorn og kleinuhring. DÍSÆTT. Enda mun þessi penni ekki haga sér vel eða fallega restina af þinginu, Þessi penni er í sykursjokki. Skoðun margra á vettvangi hefur verið sú að hafragrautur ætti alltaf að vera í boði snemma morguns á skátaþingi. Því er ég sammála, þessi penni ætlar að skora á sjoppu Klakks? klakkar? að selja hafragraut ef ykkur er annt um velferð Skátasultu og skátaþings í heild sinni.
Keyrum þetta í gang.
10. apríl 2026 kl. 10:07
Hver eru Dagbjört og Þórhallur?
Fundarstjóri er alltaf að kalla Döggu og Ladda - Dagbjört og Þórhall - Who are they? gefið ykkur fram!!! the real Dagbjört and Þórhallur please stand up.
10. apríl 2026 kl. 9:54
#hvarerValur
Ef einhver man eftir myllumerkinu #hvarervalur er það einstaklega viðeigandi núna
10. apríl 2026 kl. 9:22
Köku review:
Köku keppni:
- súkkulaði kakan 10/10
- Hin súkkulaði kakan 7/10
- súkkulaði kakan með kókos 9/10
10. apríl 2026 kl. 9:07
NEWSFLASH: Celeb spotted á Skátaþingi
Birta Dís 18 ára söngkona og tónskáld sást á Svanaborðinu.
Það hefur verið fjallað um hana á mörgum miðlum og ég ætla að reyna að næla viðtali við hana seinna á eftir maybe :P STAY TUNED!
Á meðan mæli ég með að hlusta á bangerinn sem hún gaf út í fyrra: https://open.spotify.com/track/7v1UEAsqnlqlvddejSHkSq?si=c5210889bf354118
Njótið! Birta er FRAMÚRSKARANDI og á framtíðina fyrir sér.
10. apríl 2026 kl. 9:04
Ó DAVVVÍÍÐÐÐ
I stand corrected, mig langar að sjá Signý og Davíð fara í kónga einvígi helst í gær. Fólkið er að kónga yfir sig!!!!
10. apríl 2026 kl. 8:54
Signý er KING (unbiased opinion)
Signý hlaut styrk fyrir að vera legend who's shocked? Man einhver eftir útvarpsþættinum Beauty and the Beast sem var á síðasta landsmóti, lowkey sakn, það var mjög góður þáttur sem einmitt Signý og einhver annar man ekki hver var að stjórna.
10. apríl 2026 kl. 8:51
AKUREYRARBEIBS!
Velkomin öll sömul til Akureyrar, það var miklu skemmtilegra að sinna þessum þræði undir nafnleynd EN áfram skal ég arka.
Ég vil byrja þráðinn sem Kría ritstjóri "alvöru þráðarins" inn á Skátasultu vill meina að sé bara einhver grín þráður með þessum góðu skilaboðum:
Það eru til nokkrir slagarar frá AK CITY og einn af þeim er sérstaklega viðeigandi:
https://www.youtube.com/watch?v=QFGaMyKzZDA&list=RDQFGaMyKzZDA&start_radio=1
Velkomin til Akureyrar, Akureyrarbeibs.
