Samandráttur
Skátaþing 2026 - á norðurslóð að nýju!
Nú fer Skátaþing brátt að hefjast á ný á árinu 2026. Í þetta sinn hefur þingið snúið aftur á norðurslóð en við skrifum til ykkar beint úr þingsalnum í Brekkuskóla á Akureyri!

Skátaþing 2025.
11. apríl 2026 kl. 12:00
Anton er átján ára í dag
Anton, Klakkur, er átján ára í dag og vegna tilefnisins var sungið á þinginu og fékk hann þessa fallegu "afmælisköku":
11. apríl 2026 kl. 11:46
Ds. Fimmvörðuháls verður 12-14 júní
Siggi Úlfars, Landnemi, kynnti Ds. Fimmvörðuháls þar sem Dróttskátar fá tækifæri til að ganga Fimmvörðuhálsinn. Næsta ferð verður 12-14 júní og eru allir hvattir til þess að taka þátt.
11. apríl 2026 kl. 11:43
Valur Kári, Skjöldungur, heldur kynningu um KISC
Valur Kári, Skjöldungur, er "ambassador" fyrir KISC á Íslandi. KISC er alþjóðaskátamiðstöð WOSM í Kandersteg, Sviss. Endilega talið við hann eftir þing ef að þið hafið áhuga á KISC eða Kandersteg.
11. apríl 2026 kl. 11:38
Verður Skátaþing 2027 í Árborg?
Thelma Karen Kvaran Bjarnfinnsdóttir heldur kynningu í tilraun til þess að sannfæra þingið að næsta þing verði haldið í Árborg. Meðal tillaga um staðsetningu voru mathöllin, KFC, og fangelsið.
11. apríl 2026 kl. 11:31
Hvor er betri hnúturinn? Védís Landnemi segir sína skoðun
11. apríl 2026 kl. 11:13
Ungmennaráð kynnir áskoranir til skátaþings 2026
Meðal áskorana eru:
- Búa til [rafrænann] lista yfir hvaða færnimerki skátar hafa lokið við
- Ungur skátakór
- Betri skátaskyrtur og buxur
- Lækka kosnað við viðburði
Allar áskoranirnar má lesa í innsendum þinggögnum þess efnis: https://irp.cdn-website.com/a887033f/files/uploaded/%C3%81skoranir+fr%C3%A1+Ungmenna%C3%BEingi.pdf
11. apríl 2026 kl. 11:07
"Eldri skátar" verða nú "Vættaskátar"
Ályktunartillaga sem Unnur Líf Kvaran, Skjöldungur, lagði fram og Rafnar Friðriksson flytur fyrir þingið hefur verið samþykkt en þar er lagt til að eldri skátar fái nú heitið Vættaskátar. Lesa má tillöguna hér: https://irp.cdn-website.com/a887033f/files/uploaded/%C3%81lyktunartillaga+-+v%C3%A6ttask%C3%A1tar.pdf
Leiðrétting: tillagan var ekki samþykkt í þessum lið, heldur var hún afgreidd eftir kynningu Ungmennaráðs á áskorunum sínum.
11. apríl 2026 kl. 11:02
Aðilar að BÍS þurfa nú að skila gögnum til BÍS minnst 2 vikum fyrir Skátaþing
Fram kemur þetta í lagabreytingartillögu á 10. grein laga BÍS. Lesa má tillöguna hér: https://irp.cdn-website.com/a887033f/files/uploaded/Lagabreytingartillaga+10.+gr.pdf
11. apríl 2026 kl. 10:46
Fjárhagsáætlun 2026-2027 kynnt og afgreidd
Spáð er tapi næstu tvö árin þrátt fyrir tekjuaukningu.
Fjárhagsáætlunin var samþykkt með lófaklappi.
11. apríl 2026 kl. 10:44
Tillaga að félagsgjaldi kynnt og afgreidd
Lagt var til að félagsgjald hækki úr 700kr per skáta í 750kr per skáta og var sú breyting samþykkt með lófaklappi.
11. apríl 2026 kl. 10:31
Stutt kaffihlé
Við bendum á að Skátakortérið er með bás við hliðina á Úlfljótsvatnsbásnum, hægt er að koma í viðtal í hléinu en það er verið að taka fyrir grafalvarlega kexmálið.
11. apríl 2026 kl. 10:01
BÍS hagnaðist um 13,4 milljónir árið 2025
Kemur þetta fram á ársreikningi BÍS sem kynntur var á skátaþingi 2026, var hann samþykktur með lófaklappi. Hagnaður á árinu 2024 var töluvert hærri, um 60 milljónir, en skýrist það af töluverðum samdrætti í hlutdeild BÍS í afkomu dótturfélaga, en það skýrist frekar af auknum tekjum á landsmótsári (2024).
11. apríl 2026 kl. 9:27
Starfsáætlun til 2030 kynnt
Farið var meðal annars yfir dagskráviðburði á þessum árum. Var hún samþykkt með lófaklappi í kjölfar samþykktra breytingatillaga.
11. apríl 2026 kl. 9:17
Ársskýrsla stjórnar kynnt
Harpa Ósk kynnti ársskýrslu BÍS fyrir árið 2025.
10. apríl 2026 kl. 10:13
Skátaþingi frestað til 09:00 daginn eftir
Þinginu hefur verið frestað til 09:00 á Laugardaginn 11 apríl. Nú fara Skjöldungar hópferð í ísbúð.
10. apríl 2026 kl. 10:10
Fastaráð BÍS kjörin
Eftirfarandi voru kjörin í alþjóðaráð:
- Andri Rafn Ævarsson, Ægisbúar
- Daníel Þröstur Pálsson, Árbúar
- Sunna Dís Helgadóttir, Skjöldungar
Eftirfarandi voru kjörin í starfsráð:
- Elísí Rós Helgadóttir, Hraunbúar
- Fanný Björk Ástráðsdóttir, Heiðabúar
- Guðni Hannesson, Hraunbúar
- Sigurður Viktor Úlfarsson, Landnemar
Eftirfarandi voru kjörin í stjórn skátaskólans:
- Bengta Kristín Methúsalemsdóttir, Mosverjar
- Helga Rós Einarsdóttir, Ægisbúar
- Júlía Jakobsdóttir, Landnemar
- Jón Grétar Sigurjónsson, Landnemar
- Sandra Björk Bragadóttir, Hraunbúar
Eftirfarandi voru kjörin í ungmennaráð:
- Einar Tryggvi Petersen, Árbúar
- Lára Margrét Hermannsdóttir, Heiðabúar
- María Rakel Clausen, Árbúar
- Sigrún María Einarsdóttir, Garðbúar
- Una Signý Sigurðardóttir, Landnemar
- Edda María Einarsdóttir, Garðbúar (áheyrnarfulltrúi)
Eftirfarandi voru kjörin í útilífsráð:
- Anton Dagur Björgvinsson, Klakkur
- Birkir Kári Gíslason, Klakkur
- Hörður Andri Baldursson, Klakkur
- Kjartan Bragi Ágústsson, Árbúar
Eftirfarandi voru kjörin í uppstillinganefnd:
- Ásgeir Ólafsson, Hraunbúar
- Dagbjört Brynjarsdóttir, Mosverjar
- Davíð Þrastarson, Garðbúar
- Hafdís Bára Kristmundsdóttir, Vífill
- Ingimar Eydal, Klakkur
Eftirfarandi voru kjörin sem félagslegir skoðunarmenn reikninga:
- Elfa Björg Aradóttir, Hraunbúar
- Guðmundur Þór Pétursson, Skjöldungar
- Hanna Guðmundsdóttir, Árbúar
10. apríl 2026 kl. 10:09
Skátahöfðingi kjörinn
Harpa Ósk Valgeirsdóttir, Ægisbúi, var endurkjörin skátahöfðingi.
10. apríl 2026 kl. 10:09
Meðstjórn kjörin
Eftirfarandi voru kjörin í meðstjórn BÍS:
- Björk Norðdahl, Kópar
- Jakob Heimir Patrick Burgel Ingvarsson, Hraunbúar
- Reynir Tómas Reynisson, Garðbúar
10. apríl 2026 kl. 10:04
Harpa Ósk má vera endurkjörin í embætti skátahöfðingja
Lögfræðistofa Péturs Gunnarssonar fann að Harpa Ósk er kjörgeng til endurkjörs í embætti skátahöfðingja í kjölfar breytinga á lögum BÍS á skátaþingi 2019. Þetta kemur fram í kynningu uppstillingarnefndar á framboðum þetta árið.
10. apríl 2026 kl. 9:56
Skipunarbréf nýrra félagsforingja afhent
Skipunarbréf nýrra félagsforingja hafa verið afhent eftirfarandi einstaklingum sem viðstaddir voru á þinginu:
- Aron Gauti Sigurðarsson
10. apríl 2026 kl. 9:55
Dagskrá skátaþings staðfest
Dagskrá þingsins hefur verið samþykkt með lófaklappi.
10. apríl 2026 kl. 9:49
50,9 atkvæði í höndum ungmenna þetta árið
Kjörnefnd hefur staðfest í kynningu sinni að 50,9 atkvæði á þessu þingi eru í höndum ungmenna þetta árið.
10. apríl 2026 kl. 9:27
Kaffihlé
Nú verður kaffihlé til kl. 21:50 þegar niðurstaða kjörnefndar verður kynnt.
10. apríl 2026 kl. 9:22
Kanada lang fjölmennasta landið á Landsmóti skáta 2026
Þáttakendur frá Kanada eru um 600 talsins, fleiri en allir íslenskir þáttakendur samanlagt.
10. apríl 2026 kl. 9:04
Kynningar
Fyrir kaffihlé voru kynningar haldnar, meðal þeirra voru:
- Hringferðin
- Skíðasamband skáta
- Landsmót skáta 2026
10. apríl 2026 kl. 8:59
Afhending heiðursmerkja og viðurkenninga
Harpa skátahöfðingi afhenti eftirfarandi heiðursmerki og viðurkenningar. Meðal þeirra sem hlutu viðurkenningu voru Davíð Þrastarsson, Garðbúi, en mestu lætin voru í salnum þegar nafn hans var lesið.
10. apríl 2026 kl. 8:56
Úthlutanir úr styrktarsjóði skáta kynntar
Eftirfarandi verkefni og hópar fengu úthlutanir úr styrktarsjóði skáta:
- ÚSÚ
- Dróttskátar í Stróki
- Heiðabúar
- Ds. Ramus
- Slóði - nýji dagskrávefurinn
10. apríl 2026 kl. 8:54
Allsherjarnefnd kosin
Allsherjarnefnd skipar:
- Andri Rafn Ævarsson
- Signý Kristín Sigurjónsdóttir
- Védís Helgadóttir
- Vilhjálmur Bergs
- Thelma Karen Kvaran Bjarnfinnsdóttir
Nefndin var kosin með lófaklappi.
10. apríl 2026 kl. 8:53
Kjörnefnd kosin
Kjörnefnd skipar:
- Rafnar Friðriksson
- Samúel Birkir Egilsson
- Sandra Óskarsdóttir
Kjörnefnd var kosin með lófaklappi.
10. apríl 2026 kl. 8:51
Minning látinna félaga
Skátahöfðingi bað þingið að rísa í þögn, á meðan Védis Helgadóttir spilaði á klarinett, í minningu um látin félög.
10. apríl 2026 kl. 8:46
Guðni Gíslason, landgildismeistari, ávarpar þingið
Guðni talaði um Skátagildin, sjálfstætt starfandi vettvangur fyrir eldri skáta til þess að halda starf, og mikilvægi þeirra í skátastarfi.
10. apríl 2026 kl. 8:43
Jóhann Malmquist, félagsforingi Klakks, ávarpar þingið
Talað var um mikilvægi útivistar í skátastarfi og þinggestir boðnir velkomnir til Akureyrar.
10. apríl 2026 kl. 8:40
Ávarp frá bæjarfulltrúa Akureyrar
Hlynur Jóhannsson, bæjarfulltrúi Akureyrar, flutti stutt Ávarp um mikilvægi skátastarfs á Íslandi.
10. apríl 2026 kl. 8:38
Fundarritarar kosnir
Fundarritarar voru kosnir með lófaklappi, en þeir eru:
- Kristín Hrönn Þráinsdóttir
- Kolbrún Ósk Pétursdóttir
10. apríl 2026 kl. 8:35
Fundarstjórar kosnir
Fundarstjórar hafa verið kosnir með lófaklappi, þeir eru:
- Jón Þór Gunnarsson
- Tryggvi Marinósson
10. apríl 2026 kl. 8:30
Skátaþing sett
Þingið hefur verið sett, klukkan er þrjátíu og fimm mínútur yfir átta og nú fer gamanið að byrja. Harpa skátahöfðingi hélt litla ræðu um framtíð skátastarfs á Íslandi.
9. apríl 2026 kl. 10:34
Fréttavakt hefst
Aron Gauti Sigurðar með Steinvör Arons í fangi. Bæði eru þau Skjöldungar.
Nú eru aðeins um 34 stundir þar til að Skátaþing 2026 verður sett. Við hefjum fréttavaktina snemma þetta árið, ef þið fylgist með eigið þið von á innleggjum með áminningar um fresti sem eru að líða sem og annað skemmtilegt efni.
